top of page

Pétur pókus

Pétur pókus

Pétur Gísli Finnbjörnsson fæddist 22. september 1973 er íslenskur töframaður sem gengur undir nafninu Pétur pókus.


Áhugi Péturs á töfralistinni kviknaði þegar hann var sjö ára eftir að frændi hans hafði sýnt honum töfrabrögð og síðan kennt honum. Pétur keypti þá töfradót í verslun á Laugavegi og var ekki aftur snúið. Í kjölfarið setti hann sig í samband við Baldur Brjánsson og sóttist eftir að fá að kaupa af honum töfradót sem Baldur þvertók fyrir. Eftir nokkrar tilraunir bauðst Baldur þó til að aðstoða hann. Baldur var tregur til fyrst en gaf sig loks og hjálpaði Baldur hann við að fínpússa töfrabrögðin. 16 ára kom Pétur fyrst fram opinberlega og var það í Stundinni okkar. Baldur kom Pétri í samband við töframenn erlendis og skráði Pétur sig í kjölfarið í þriðja stærsta töfraklúbb heims þar sem um 50 þúsund töframenn höfðu aðild að. Þegar Pétur var orðinn þekktur fyrir hæfileika sína hafði ungur drengur samband við hann sem sóttist eftir sambærilegum stuðningi. Var um að ræða Lalla potter sem varð nemandi Péturs. Lalli potter tók síðar upp nafnið Lalli töframaður. Þá þjálfaði Pétur einnig Skara skrípó fyrir sýningar hans í Loftkastalanum 1996.


Aflraunamaðurinn Njáll Torfason dró bíla og rútur með löngutön, losaði sig úr fjötrum, reif í sundur símaskrár og gekk berfættur á glerbrotum og heitum glóðum. Árið 1993 varð hann einnig þekkktur fyrir að festa á sig hluti úr járni og postulíni með hugarorkunni og sagðist búa yfir einbeitingu sem gerði sér það mögulegt. Hann festi meðal annars skeiðar, diska og straujárn á líkama sínum. Þennan einkennilega hæfileika uppgötvaði hann eftir að Morgunblaðið greindi frá Rússanum Suvorov sem var fær um það sama. Alþýðublaðið setti sig þá í samband við hinn 19 ára gamla Pétur pókus sem titlaður var sjónhverfingameistari. Í viðtalinu sagði Pétur að hann hafi hafið æfingar í kjölfar umfjallarinnar og var orðinn fær til þess sama. Þá væri ekkert yfirnáttúrulegt við athæfið og fullyrti að 90% fólks gæti leikið þetta eftir með æfingu.


Pétur fékk starf sumarið 1993 hjá Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkurborgar við að ferðast á milli leikvalla borgarinnar og sýna töfrabrögð. Að hausti 1995 hætti Pétur í hefðbundinni vinnu og varð í kjölfarið töframaður í aðalstarfi. Fram að því hafði hann helst skemmt börnum en lagði aukna áherslu á skemmtunum fullorðinna. Þar að auki hélt hann töfranámskeið og sagði töframann leynast í okkur öllum.


Pétur fór í Covent Garden í Bretlandi og sýndi þar töfrabrögð í samkeppni við fjölmarga aðra listamenn en þar snerist lífið um að lifa frá degi til dags og eiga í sig og á. Listamennirnir mættu klukkan 08:00, nöfn þeirra sett í pott og sá fyrsti sem var dreginn fékk að velja sér fyrsta tímann yfir daginn sem varði í 40 mínútur. Áhorfendur gátu verið allt frá 50 og upp í 500 og fór eftir hversu vel gekk að fanga athygli gesta garðsins.


Fimmtudagskvöldið 20. september 2001 fór Pétur af stað með töfrasýninguna PG Magic Show sem haldið var á Broadway. Öllu var tjaldað til og kom leikstjóri, leikmyndarhönnuður og tónlistarstjóri að sýningunni. Leikmyndarhönnuðurinn var Vignir Jóhannsson en hann er mikill töfraáhugamaður og meðlimur Hins íslenska töframannagildis. Auk þeirra stigu Pétur pókus, Bjarni töframaður og Baldur Brjánsson á stokk. Í sýningunni lofaði Pétur stórum uppákomum og varaði hjartveika við. Þá myndi Pétur bjóða upp á annars konar atriði en hann hafði verið þekktur fyrir, fór úr "stand-up" töfrabrögðum og í stærri atriði þar sem eldur og sverð, reykur og bombur, klútar og sverð koma við sögu, auk aðstoðarkvenna og hesta. Þar að auki hafði Pétur keypt rúmlega 100 ára gamalt töfrabragð á uppboði í Flórída nokkrum árum fyrr sem hann ætlaði að sýna. Atriðið var á þá leið að tveir klappstólar voru andspænis hvorum öðrum, planki lagður á milli þeirra og manneskja ofan á plankann. Öðrum stólnum var kippt undan og sveif manneskjan þá. Á auglýsingu fyrir sýninguna var Pétur auglýstur sem "hinn íslenski David Copperfield".


Pétur fór að fást við listir tengdum töfrabrögðum en þó ekki töfrabrögð. Þar á meðal voru sverðgleypingar og að spúa eldi. Hvoru tveggja er ekki hættulaust en hann segir að kviknað hafi í andliti sínu og fékk olíu í lungun, fékk lungnabólgu og var í kjölfarið á sjúkrahúsi í tíu daga. Á níu ára afmæli Kringlunnar var þar í boði skemmtileg dagskrá, var Pétur pókus meðal annars á dagskrá sem losaði sig úr spennitreyju hangandi á fótunum. Árið 2002 setti Pétur heimsmet á ráðstefnu Fé­lags sverðag­leypa (e. Sword Swallowers Associati­on In­ternati­onal) í Penn­sylvan­íu auk 18 annarra sverðagleypa. Hann fékk metið staðfest í Heims­meta­bók Guinn­ess árið 2005 en þá hafði Pétur þegar tekið ákvörðun um að hætta sverðgleypingum þar sem það sé ekki hollt til langframa að gleypa sverð. Þá setti hann einnig heimsmet í teygjuhoppi og að losa sig úr spennitreyju hangandi á fótunum, fyrst á Halló Akureyri og síðar í beinni útsendingu á Stöð 2.

Pétur pókus

viltu bóka eða senda fyrirspurn?

Einar Aron leggur áherslu á heiðarleika og samfélagslega ábyrgð. Allar greiðslur fara í gegnum fyrirtækið Trúðaskólinn ehf., kt. 591023-0200, sem stendur skil á öllum opinberum gjöldum.

Sími: 692 2330

einar@tralli.is

  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

©2026 Einar Aron

bottom of page