top of page

Newmann the Great

Newmann the Great

C. A. Newmann fæddist árið 1880 og var dáleiðari og hugsunarlesari (e. mentalist). Hann hélt sína fyrstu sýningu 13 ára gamall og tók síðar upp nafnið Newmann the Great. Lengi af kom hann fram í sömu borgum ár eftir ár og hélt sýningarnar í tjaldi sem hann átti. Newmann sýndi helst hugsunarlestur en sýndi nokkrar stórar sjónhverfingar (e. illusions) í gegnum ferilinn. Hann var einn fyrsti meðlimur I.B.M., meðlimur númer 585.


Síðari ár kom Newmann fram í ýmsum háskólum í Minnesota og Norður Dakota og dáleiddi nemendur sem lærðu sálfæði. Dáleiðsla er aðferð sem stundum er notuð í sálfræði.


Newmann var mikill bókasafnari og sankaði að sér alls kyns bókum um töfrabrögð. Hann átti mest um sjö þúsund bækur sem var eitt stærsta safn sinnar tegundar á þeim tíma. Um tíu árum fyrir andlát hans fór hann að koma bókasafninu fyrir í öruggum höndum. Þannig fóru um eitt þúsund bækur á bókasafn háskólans í Minnesota. Plakötin hans fóru á safn í London.


Howard Thurston sagði Newmann vera einn besta hugsunarlesara allra tíma, þeir voru að vísu vinir og Thurston því hlutdrægur. Vitað er að Newmann hélt stórar töfrasýningar árið 1950 og hafði því töfrað í 54 ár. Newmann lést árið 1952, 72 ára gamall.

Newmann the Great

viltu bóka eða senda fyrirspurn?

Einar Aron leggur áherslu á heiðarleika og samfélagslega ábyrgð. Allar greiðslur fara í gegnum fyrirtækið Trúðaskólinn ehf., kt. 591023-0200, sem stendur skil á öllum opinberum gjöldum.

Sími: 692 2330

einar@tralli.is

  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

©2026 Einar Aron

bottom of page